Beint á leiðarkerfi vefsins

28.11.2011

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í desember, janúar og febrúar.

1.11.2011

Stórt skref til eflingar starfsnámi

VinnustaðanámssjóðiurKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Þetta er merkur áfangi í eflingu starfsnáms í landinu en samtals var úthlutað 57 milljónum til 65 fyrirtækja og njóta um 170 nemar góðs af þessari fyrstu úthlutun. Ingólfur Haraldsson hótelstjóri á Hilton Nordica tók á móti styrknum fyrir hönd síns fyrirtækis.

7.10.2011

World Skills London

World Skills pipararWorld Skills keppninni lauk í dag. Íslensku keppendunum hefur gengið ágætlega í sínum greinum. Keppt er í samtals 46 greinum en fjöldi þátttakenda í hverri grein er mismunandi. Hér er hægt að nálgast myndir  frá keppninni og keppendum. Hér er kynning á íslensku keppendunum. Myndband með Friðrik Óskarssyni keppanda í pípulögnum og Jóhönnu Stefnisdóttur keppanda í hársnyrtigreinum.

5.10.2011

World Skills London

Ísland á WSLondonWorld Skills leikarnir voru settir í gær og var opnunarhátíðin hin glæsilegasta. Samtals taka um 950 keppendur frá 58 þjóðlöndum þátt í leikunum. Keppnin hefst í dag og stendur yfir næstu fjóra daga. Frá Íslandi keppa þau Jóhanna Stefnisdóttir í hársnyrtiiðn, Friðrik Óskarsson í pípulögn og Arnar Helgi Ágústsson í rafvirkjun.

Sjá nánar myndir frá opnunarhátíðinni.

18.9.2011

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2011

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema fór fram dagana 17. og 18. september í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í úrslitakeppninni kepptu fimm framreiðslunemar og aðrir fimm nemar í matreiðslu. Keppnin var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar í keppni framreiðslunema voru þær Elín Bogga Þrastardóttir nemi á VOX, meistari Elínar er Gígja Magnúsdóttir og Eydís Rut Ómarsdóttir á Fiskfélaginu. Meistari Eydísar er Guðmundur Hansson. Í matreiðslu urðu sigurvegarar þeir Kristofer Hamilton Lord og Viktor Már Snorrason nemar á Fiskfélaginu. Meistari þeirra er Vigdís Ylfa Hreinsdóttir. Vinningshafar munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Finnlandi í apríl 2012.  

3.8.2011

ATypi heldur ráðstefnu í Hörpu

Alþjóðasamtök leturgerðarmanna, ATypi heldur ráðstefnu í Hörpunni í Reykjavík 14. - 18. september n.k. Ráðstefnan hefst með 2ja daga vinnustofu og málstofum um leturgerð og hönnun þar sem gestir fræðast um skáletur, bókstafahönnun og leturhönnun. Þá verða vinnustofur um vef-letur, letur fyrir lesbretti, námskeið og fonta. Sérstaklega er minnt á fyrirlestur Gunnlaugs S.E. Briem fimmtudagskvöldið 15. september. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.
Prenttæknisvið hefur tryggt sér takmarkaðan fjölda afsláttarmiða á ráðstefnuna fyrir aðildarfélaga sína. Áhugasamir hafi samband við sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn(hjá)idan.is

29.6.2011

Hagnýtt nám á nærumhverfið

IÐAN fræðslusetur og menntavísindasvið Háskóla Íslands taka þátt í Evrópuverkefninu Ehap (E- learning for health agents). ehap hópurinn

Markmið verkefnisins er að þróa og yfirfæra kennsluaðferðir í fjarnámi fyrir sí- og endurmenntun. Markhópurinn í þessu verkefni er einstaklingar sem vinna við og hafa áhrif á næringu, mataræði og hreyfingu, s.s. fagfólk í matvæla- og veitingagreinum, kennarar og fagfólk í heilbrigðisgreinum.

12.5.2011

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Bakaraidnmai2011Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum fóru fram dagana 9. - 12. maí. Samtals þreyttu 30 nemar sveinspróf að þessu sinni í fjórum iðngreinum, í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn.

3.5.2011

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í maí og júní ef næg þátttaka fæst:

Dagsetningar prófanna verða birtar á heimasíðu okkar um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2011.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

1.5.2011

Úrslit Norrænu nemakeppninnar

VideyNorrænu nemakeppninni lauk laugardaginn 30. apríl og voru úrslit tilkynnt á lokahófi keppninnar sem var haldið í Viðey um kvöldið. Í matreiðslu fóru úrslit þannig að nemar frá Danmörku hrepptu fyrsta sætið, Ísland varð í öðru sæti, Finnland í þriðja sæti, Norðmenn í fjórða og Svíþjóð var í fimmta sæti. Í framreiðslu voru Norðmenn í fyrsta sæti, Danmörk var í öðru sæti, Ísland var í þriðja sæti og Svíþjóð var í fjórða sæti. Keppnin var mjög hörð og jöfn og skildu fá stig á milli liðanna. Sjá myndir og dagskrá hér.

28.4.2011

Norræna nemakeppnin 2011

Norræna nemakeppnin 2011Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu verður haldin í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi dagana 29. – 30. apríl nk. Það eru Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Matvæla- og veitingafélag Íslands (MATVÍS) sem standa fyrir keppninni með stuðningi Hótel- og matvælaskólans í Kópavogi og IÐUNNAR fræðslusetur. Íslensku keppendurnir eru þau Ingadóra Snorradóttir og Ester Jakobsdóttir í framreiðslu. Í matreiðslu keppa þeir Birkir Örn Sveinsson og Hafsteinn Óskarsson. Sjónvarpað verður beint frá keppninni yfir vefinn á slóðinni  www.verkidn.is.  Útsending hefst kl. 14:30.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd