10.12.2009
Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum
7.12.2009
Aukin þjónusta
Iðan hefur nú tekið að sér aukna þjónustu við notendur CABAS kerfissins hér á landi sem verður kynnt frekar fyrir ykkur á næstunni, því viljum við minna ykkur á þjónustusíma CABAS og póstfangið þar sem hægt er að leita eftir svörum vegna faglegrar og tæknilegrar notkunar kerfissins.
Minnum einnig á notendavefinn á "cabas.is" þar sem allar ítarlegri upplýsingar og svör munu birtast ásamt ýmsum fróðleik.
Netfangið er: cabas@idan.is
Þjónustusíminn er 618-3200
10.9.2009
Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum
Afhending sveinsprófsskírteina í matvæla- og veitingagreinum fór fram miðvikudaginn 9. september. Prófin fóru fram í maí sl. en samtals luku 31 sveinsrófi. Matreiðslusveinar voru 11, framreiðslumenn 11, bakarar 5 og kjötiðnarmenn samtals 4. Afhendingin fór fram að Stórhöfða 31 í húsakynnum MATVÍS.
2.9.2009
Málmsuðunámskeið fyrir starfsfólk í prentiðnaði
Starfsfólki í prentiðnaði stendur til boða að sækja námskeið í málmsuðu. Námskeiðið verður haldið þegar nægileg þátttaka fæst. Námskeiðin eru haldin í fullkominni aðstöðu Málm- og véltæknisviðs IÐUNNAR að Gylfaflöt þar sem kennslutæki eru afar fullkomin og leiðbeinendur þaulvanir. Námskeiðin spanna þrjá daga og miðast við að þátttakendur öðlist þekkingu á grunnatriðum rafmagnsfræði og notkun rafmagns við ljósbogasuðu. Farið er í mismunandi suðuaðferðir s.s. TIG, MIG/MAG og pinnasuðu. Að námskeiðinu loknu getur þátttakandi soðið einfaldar suður í TIG, MIG/MAG og pinna. Skráning er á www.idan.is og í síma 5906400.
10.8.2009
TransPromo ráðstefna 6-7 október
Infotrends og CIT Group standa fyrir TransPromo ráðstefnu í Brussel 6. - 7. október nk. TransPromo ryður sér nú til rúms í Evrópu og Bandaríkjunum og þykir fyrirtækjum í gagnavinnslu eftir nokkru að slægjast á þeim markaði. TransPromo (Transactional documents for Promotional purposes) er það þegar auglýsingar eru prentaðar á yfirlit og reikninga, t.d. bankayfirlit, símreikninga, orkureikninga ofl. Þeir aðilar sem helst hafa nýtt sér tækifærin eru smærri prentfyrirtæki sem hafa stafræna tækni á valdi sínu og fyrirtæki í auglýsingaiðnaði.
Hér eru hlekkur á viðburðinn þar sem afla má frekari upplýsinga og skrá þátttöku.
Ráðstefnunni er gróflega skipt í þrjá hluta þar sem fjallað eru markaðsfærslu, ráðgjöf og tæknilausnir jöfnum höndum.
Þess má geta að framtíðarspekingar á síðustu DRUPA spáðu því að vaxtarbroddurinn í prentiðnaði yrði einna helst í prentun breytilegra gagna og þá ekki síst með TransPromo.
25.6.2009
Raunfærnimat á Akureyri og Ísafirði
Síðustu vikur hafa 34 einstaklingar lokið raunfærnimati í ýmsum greinum á Akureyri og Ísafirði. Í tilefni þess var haldin smá útskrift. Flestir þátttakendur hafa skráð sig í nám í haust.
3.6.2009
Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum 19. júní
8.5.2009
Útskrift úr raunfærnimati
Útskrift úr raunfærnimati var haldin fimmtudaginn 7.mai. Að þessu sinni útskrifuðust 32 úr raunfærnimati í húsasmíði, 9 úr málaraiðn, 8 úr vélvirkjun og 3 úr stálsmíði. Þetta var í fyrsta skipti sem IÐAN fræðslusetur vinnur að raunfærnimati í stálsmíði en áður hefur verið unnið að raunfærnimatsverkefnum í hinum greinunum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hluta af þátttakendum sem kláruðu raunfærnimatið.
7.5.2009
Fagnámskeið í matvælagreinum, brúargerð yfir í formlegt nám.
Fagnámskeiði II lauk núna í vikunni með útskrift. Að þessu sinni luku samtals 15 þátttakendur 60 kennslustunda námi með formlegu námsmati. Fagnámið er metið til eininga og gefur styttingu á formlegu námi í matvælagreinum en námsleiðin er hugsuð sem brúargerð yfir í formlegt nám í greinunum. Þátttakendur hafa nú lokið samtals 120 kennslustunda námi stefna á áframhaldandi nám við Hótel- og matvælaskólann. Mikill hugur er í hópnum að halda áfram námi. Hópurinn sem útskrifaðist núna stefnir á raunfærnimat matartækna sem verður haldið á næstunni. IÐAN fræðslusetur mun annast raunfærnimatið.
30.4.2009
Starfsmenn hjá Síld og fisk ljúka námskeiði
Starfsmenn í kjötvinnslu fyrirtækisins Síld og fiskur ehf voru að ljúka námskeiðinu Gæðakjöt. Námskeiðið fjallar um meðferð matvæla, innra eftirlit og örverufræði. Samtals luku 48 starfsmenn námskeiðinu. Nokkur aldursmunur var á yngsta og elsta þátttakendanum á námseiðinu eða 58 ár. Margrét Erla Friðjónsdóttir er 78 ára og Justina Namirowska 20 ára en þær tóku á móti skírteinum sínum við útskrift í Hótel- og matvælaskólanum í gær.
18.4.2009
Norræna nemakeppnin 2009
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagana 17. - 18. apríl í Lundi í Svíþjóð. Frá Íslandi kepptu í matreiðslu þeir Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Hilton Nordica og Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum. Í framreiðslu kepptu þeir Ari Thorlacíus nemi á Hilton Nordica og Styrmir Örn Arnarson nemi á Perlunni. Þjálfara nemanna voru þeir Gunnar Rafn Heiðarsson í framreiðslu og Gunnar Karl Gíslason í matreiðslu. Keppnin var mjög jöfn og hörð. Íslensku nemarnir lentu í þriðja sæti í matreiðslu og fjórða sæti í framreiðslu.
26.3.2009
Ben Willmore væntanlegur með Photoshop CS4
Íslandsvinurinn Ben Willmore er nú væntanlegur til landsins en hann kennir photoshop CS4 á námskeiði 30. apríl. Nokkur sæti eru enn laus en vænta má þess að þau fyllist hratt.
Adobe hafa nú endurbætt Photoshop talsvert frá fyrr útgáfum og Ben kennir helstu breytingar á forritinu. Meðal breytinga eru nýjir Adustments og Masks stýrispjöld en auk þess fer Ben yfir eftirfarandi:
• Nýjir ,,Vibrance Adjustment" stillingar•Dýptarskerpu ,,bracketing"• Nýr Panorama Stitching möguleiki• Content Aware Scaling, Highpas skerpustilling•Að vinna með Bridge CS4 sem er töluvert endurbætt frá fyrri útgáfum. • Betri Retouching möguleikar • Að nota Clone Source panel• Að nýta sér möguleika Actions, að skilja Blending Modes, að laga gamlar ljósmyndir á fljótan og öruggan hátt.
Mögulegt er að kynna sér efni Ben´s á www.digitalmastery.com
13.3.2009
Menntatorg
IÐAN fræðslusetur tók þátt í Menntatorgi sem haldið var 6.mars í Skeifunni 8. Þar voru kynnt ýmiss úrræði sem eru í boði fyrir þá sem eru í atvinnuleit. Á meðfylgjandi mynd má sjá Eddu og Iðunni náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs spjalla við þátttakendur Menntatorgsins.
3.3.2009
Bókahönnun með Kristínu Rögnu
26.2.2009
Raunfærnimat
Raunfærnimat byggist á því að meta þá færni og þekkingu sem einstaklingur hefur öðlast á vinnumarkaðnum. Metið er hvort að sú þekking og færni uppfylli viðmið sem sett eru til þess að ljúka flestum námsáföngum námsbrautar. Að raunfærnimati loknu er alltaf a.m.k. 1 önn eftir í skóla og námssamningurinn er skoðaður í kjölfarið. Þátttökuskilyrðin eru 5 ára staðfestur vinnutími í greininni og 25 ára lífaldur.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa IÐUNNAR fræðsluseturs. Nánari upplýsingar um raunfærnimatsferlið er undir náms- og starfsráðgjöf hér á síðunni en einnig á heimsíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
16.2.2009
Kristín Ragna kennir bókahönnunarnámskeið í mars
5.2.2009
Ánægðir með námskeið um viðhald húsa
Námskeið í viðhaldi og viðgerðum á húsum á vegum Verkalýðsfélags Vestfirðinga og IÐUNNAR fræðsluseturs var haldið um síðustu helgi. Kennarar á námskeiðinu voru þeir Jón Sigurjónsson og Björn Marteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það var mál þátttakenda að námskeiðið hefði verið gagnlegt og myndi nýtast vel, sérstaklega ef endurgreiðsla virðisaukaskatts af endurbótum yrði að veruleika. Einnig höfðu reyndari þátttakendur orð á því að margt fróðlegt hefði komið þar fram. Á laugardeginum var síðan farið í vettvangsferð til Bolungavíkur og framkvæmdirnar við Félagsheimili Bolungarvíkur skoðaðar.
5.2.2009
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu.
23.1.2009
Námsvísir IÐUNNAR kominn út!
Námsvísir IÐUNNAR vorið 2009 er nú kominn út. Honum hefur verið dreift til aðildarfyrirtækja IÐUNNAR auk starfsmenntaskóla, stéttarfélaga og annarra hópa sem IÐAN þjónar. Skráning á námskeið fer vel af stað og rétt að minna áhugasama á að skrá sig fyrr en síðar.
Leit
Mynd









