Beint á leiðarkerfi vefsins

15.11.2008

Úrslit nemakeppni í matreiðslu

nemakeppni_09Úrslitakeppni í nemakeppni matreiðslunema fór fram föstudaginn 14. nóvember. Sjö stigahæstu nemarnir eftir forkeppni sl. þriðjudag kepptu til úrslita. Keppendur matreiddu tvo rétti á samtals þremur klukkutstundum, aðalrétt úr þorski og eftirrétt úr skyri. Keppni sjömenningana var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar keppninnar voru þeir Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum og Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Vox.  

14.11.2008

Auglýsing um sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf var birt í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sunnudaginn 26. október.

14.11.2008

Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum

Fundur um stöðu iðnnemaFjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.

 

11.11.2008

Nemakeppni í matreiðslu

Matreidslunemar08Nemakeppnin í matreiðslu hófst í morgun með forkeppni matreiðslunema. Samtals taka 22 nemar þátt í keppninni sem fer fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í forkeppninni fá nemarnir sýniskörfu með matvælum og verkefnið er að búa til fjögurra rétta matseðil úr þeim hráefnum sem eru í körfunni. Sjö hæstu nemarnir taka þátt í lokakeppni matreiðslunema nk. föstudag.

7.11.2008

Áhugi fyrir GEMS

Helen_breyttÞann 6. Nóvember voru  niðurstöður tilraunaverkefnisins GEMS - Guidance for Educators, mentors and Students (http://www.leogems.org/) kynntar.  Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri setti ráðstefnuna en María Kristín Gylfadóttir verkefnisstjóri Alþjóðaskrifstofunnar stýrði henni.

7.11.2008

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu

Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu hefst þann 11. nóvember nk. í Hótel- og matvælaskólanum en þá fer forkeppnin fram. Þeir sjö nemar sem standa sig best eftir forkeppnina  í matreiðslu og framreiðslu taka þátt í lokakeppninni sem verður síðar í nóvember.

 

Forkeppni í matreiðslu felst í því að nemendur setja saman matseðil úr gefnum hráefnislista (mystery-basket), reikna út kostnað við matseðilinn og meta framlegð.  

 

Forkeppni í framreiðslu verður með þeim hætti að lagt verður fyrir skriflegt og verklegt próf í bar. Keppendur útfæra og laga drykki eftir að hafa sett saman uppskriftir af drykknum.

5.11.2008

Styrkir til félagsmanna matvæla- og veitingasviðs

Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR styrkir félagsmenn sýna til endurmenntunar eftir ákveðnum reglum. Félagsmenn geta fengið allt að 30.000 kr. ári í styrk til endurmenntunar. Sjá reglur um styrki til endurmenntunar.

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd