Beint į leišarkerfi vefsins

29.10.2008

IŠAN fręšslusetur og Starfsafl fręšslusjóšur ķ samstarf

IÐAN og StarfsaflsUndirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).

18.10.2008

Fyrirtęki į Akureyri heimsótt

Fyrirtæki í matvæla- og veitingagreinum á Akureyri voru heimsótt í vikunni. Kynning fór fram á þjónustu matvæla- og veitingsviðs og IÐUNNAR. Nemamál og nýliðun í greinunum var rædd og símenntun í greinunum. Að þessu sinni voru fyrirtækin Bakaríið við brúna, Kristjánsbakarí, Norðlenska, Kjarnafæði, Hótel Kea, Strikið og Bautinn heimsótt. 

16.10.2008

IŠAN į Akureyri

Móttaka IÐUNNAR á AkureyriÍ tilefni af heimsókn IÐUNNAR í fyrirtæki og skóla norðurlandi var boðið til móttöku á efstu hæðinni á Strandgötunni á Akureyri. Ferð IÐUNNAR hefur tekist mjög vel og fjöldi fyrirtækja og skóla hefur verið heimsóttur. Mikilvægar upplýsingar hafa fengist í ferðinni sem verið er að vinna nánar úr. Skólafólk og fagmenn úr greinunum sem tengjst IÐUNNI mættu í móttökuna á Strandgötunni sem tókst með ágætum.

15.10.2008

IŠAN į noršurlandi

VMAkynningStarfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs eru þessa vikuna að kynna starfsemi fyrirtæksins á norðurlandi. Í boði eru fjölbreytt námskeið og þjónusta fyrir félagsmenn IÐUNNAR. Starfsmenntadeildin kynnir þjónustu fyrirtækisins við iðn- og starfsnámsnemendur og náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR kynna upplýsingaveitu um iðn- og starfsnám. Í Verkmenntaskólanum á Akureyri fór fram kynning á þjónustu starfsnámsdeildar.   

Slóšin mķn:

Forsķša

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd