18.12.2008
Sigurður Ármanns kennir Illustrator námskeið í febrúar
Sigurður Ármannsson kennir Illustrator námskeið í byrjun febrúar. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa nokkra undirstöðu í Illustrator en vilja koma sér betur inn í námskeiðið. Sigurður hefur sett upp ítarlega lýsingu á námskeiðinu á heimasíðu sinni www.font.is
Skráning á námskeiðið er sem fyrr með því að smella á linkinn hér til hægri.
8.12.2008
Menntaáætlun Evrópusambandsins
Mannaskipta verkefni IÐUNNAR fræðsluseturs er meðal 9 fyrirmyndarverkefna í Leonardo áætluninni.
Annað hvert ár eru veittar gæðaviðurkenningar fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni. Nú er komið að því að veita viðurkenningar fyrir Leonardó fyrirmyndarverkefni fyrir árin 2005 og 2006. Það er sérstök ánægja að tilkynna að IÐAN fræðslusetur er meðal 9 fyrirmyndarverkefna fyrir árin 2005-2006 og verða kynnt sérstaklega nýjum bæklingi Leonardo mannaskiptaverkefna.
Alls uppfylltu 55 verkefni skilyrði fyrir þátttöku.
15.11.2008
Úrslit nemakeppni í matreiðslu
Úrslitakeppni í nemakeppni matreiðslunema fór fram föstudaginn 14. nóvember. Sjö stigahæstu nemarnir eftir forkeppni sl. þriðjudag kepptu til úrslita. Keppendur matreiddu tvo rétti á samtals þremur klukkutstundum, aðalrétt úr þorski og eftirrétt úr skyri. Keppni sjömenningana var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar keppninnar voru þeir Ari Þór Gunnarsson nemi á Sjávarkjallaranum og Bjarni Siguróli Jakobsson nemi á Vox.
14.11.2008
Auglýsing um sveinspróf
14.11.2008
Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum
Fjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.
11.11.2008
Nemakeppni í matreiðslu
Nemakeppnin í matreiðslu hófst í morgun með forkeppni matreiðslunema. Samtals taka 22 nemar þátt í keppninni sem fer fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í forkeppninni fá nemarnir sýniskörfu með matvælum og verkefnið er að búa til fjögurra rétta matseðil úr þeim hráefnum sem eru í körfunni. Sjö hæstu nemarnir taka þátt í lokakeppni matreiðslunema nk. föstudag.
7.11.2008
Áhugi fyrir GEMS
Þann 6. Nóvember voru niðurstöður tilraunaverkefnisins GEMS - Guidance for Educators, mentors and Students (http://www.leogems.org/) kynntar. Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri setti ráðstefnuna en María Kristín Gylfadóttir verkefnisstjóri Alþjóðaskrifstofunnar stýrði henni.
7.11.2008
Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu
Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu hefst þann 11. nóvember nk. í Hótel- og matvælaskólanum en þá fer forkeppnin fram. Þeir sjö nemar sem standa sig best eftir forkeppnina í matreiðslu og framreiðslu taka þátt í lokakeppninni sem verður síðar í nóvember.
Forkeppni í matreiðslu felst í því að nemendur setja saman matseðil úr gefnum hráefnislista (mystery-basket), reikna út kostnað við matseðilinn og meta framlegð.
Forkeppni í framreiðslu verður með þeim hætti að lagt verður fyrir skriflegt og verklegt próf í bar. Keppendur útfæra og laga drykki eftir að hafa sett saman uppskriftir af drykknum.
5.11.2008
Styrkir til félagsmanna matvæla- og veitingasviðs
29.10.2008
IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf
Undirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).
18.10.2008
Fyrirtæki á Akureyri heimsótt
Fyrirtæki í matvæla- og veitingagreinum á Akureyri voru heimsótt í vikunni. Kynning fór fram á þjónustu matvæla- og veitingsviðs og IÐUNNAR. Nemamál og nýliðun í greinunum var rædd og símenntun í greinunum. Að þessu sinni voru fyrirtækin Bakaríið við brúna, Kristjánsbakarí, Norðlenska, Kjarnafæði, Hótel Kea, Strikið og Bautinn heimsótt.
16.10.2008
IÐAN á Akureyri
Í tilefni af heimsókn IÐUNNAR í fyrirtæki og skóla norðurlandi var boðið til móttöku á efstu hæðinni á Strandgötunni á Akureyri. Ferð IÐUNNAR hefur tekist mjög vel og fjöldi fyrirtækja og skóla hefur verið heimsóttur. Mikilvægar upplýsingar hafa fengist í ferðinni sem verið er að vinna nánar úr. Skólafólk og fagmenn úr greinunum sem tengjst IÐUNNI mættu í móttökuna á Strandgötunni sem tókst með ágætum.
15.10.2008
IÐAN á norðurlandi
Starfsmenn IÐUNNAR fræðsluseturs eru þessa vikuna að kynna starfsemi fyrirtæksins á norðurlandi. Í boði eru fjölbreytt námskeið og þjónusta fyrir félagsmenn IÐUNNAR. Starfsmenntadeildin kynnir þjónustu fyrirtækisins við iðn- og starfsnámsnemendur og náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR kynna upplýsingaveitu um iðn- og starfsnám. Í Verkmenntaskólanum á Akureyri fór fram kynning á þjónustu starfsnámsdeildar.
22.9.2008
EuroSkills
Keppnin EuroSkills 2008 lauk laugardaginn 20. september. Samtals var keppt í 49 greinum og voru þátttakendur um 400 talsins frá samtals um 30 löndum. Keppnin var skipulögð ýmist sem keppni á milli einstaklinga og liðsveita eða eingöngu sem einstaklingskeppni. Í hársnyrtigreinum var einstaklingskeppni og þar kepptu þær Arnbjörg og Þorbjörg fyrir hönd Íslands. Þær voru báðar fyrir ofan miðju. Sjá nánar niðurstöður á heimsíðu EuroSkills
18.9.2008
EuroSkills í Rotterdam
EuroSkills keppnin fer fram í Rotterdam dagana 18. - 20. september. Samtals taka um 30 lönd í Evrópu þátt í keppninni og Íslendingar eru þar á meðal. Frá Íslandi taka þær Arnbjörg Jóhannsdóttir og Þorbjörg Bergþórsdóttir þátt í keppni í hársnyrtigreinum. Arnbjörg er nemi á stofunni Lína Lokkafína og Þorbjörg á hársnyrtistofunni Ónix.
4.9.2008
Nýr námsvísir kemur út í dag!
Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.
Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.
21.8.2008
Björgvin Páll Gústafsson hæstur á sveinsprófi í bakaraiðn
20.5.2008
Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR
Ársfundur Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR fræðsluseturs verður haldinn að Stórhöfða 31, þriðjudaginn 27. maí nk., kl. 15. Þema ársfundarins í ár verða fyrirhugaðar breytingar á Lögum um matvæli en frumvarp þessa efnis liggur nú fyrir á Alþingi. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir því að heimila innflutning á fersku kjöti til landsins. Sigurður Örn Hansson forstöðumaður matvælaöryggis og neytendamála Matvælastofnunar mun kynna helstu ástæður fyrir þessum breytingum og útskýra afleiðingar þeirra fyrir fyrirtæki og félagsmenn í matvæla- og veitingagreinum.
16.5.2008
Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum
Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum fóru fram dagana 8. til 15. maí. Samtals þreyttu 34 nemendur sveinspróf að þessu sinni. Í matreiðslu 24, fjórir í framreiðslu, þrír í bakaraiðn og þrír í kjötiðn.
11.5.2008
Aðalfundur IÐUNNAR fræðslusetur
Aðalfundur var haldinn þriðjudaginn 29. apríl sl. á Grand Hótel. Í stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs árið 2008 eru:
| Aðalmenn: | Varamenn: |
| Bjarni Thoroddsen SI | Atli Vilhjálmsson BGS |
| Finnbjörn Hermannsson Samiðn | Erna Hauksdóttir SAF |
| Georg Páll Skúlason FBM | Heimir Kristinsson Samiðn |
| Guðmundir I. Skúlason BGS | Haraldur Dean Nelson SI |
| Hilmar Harðarson FIT | Hákon Hákonarson Samiðn |
| Magnús Magnússon VM | Ingi Bogi Bogason SI |
| Níels Olgeirsson MATVÍS | Ingólfur Sverrisson SI |
| Ragnheiður Héðinsdóttir SI | Stefán Ólafsson FBM |
| Jón Steindór Valdimarsson SI | Sveinn Ingason FIT |
| Þorsteinn Víglundsson SI | Þorsteinn Gunnarsson MATVÍS |
20.4.2008
Bronsverðlaun í Norrænu nemakeppninni
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram dagan 18. - 20. apríl í Odense í Danmörku. Fimm lönd taka þátt í keppninni eða Noregur, Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Ísland. Löng hefð er fyrir keppninni en hún hófst fyrir 27 árum. Keppnin var hörð að þessu sinni. Ísland lenti í þriðja sæti í keppni matreiðslunema og í fimmta sæti í keppni framreiðslunema.
18.4.2008
Íslandsmót iðngreina sett í dag!
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.
17.4.2008
Verk og vit 2008
IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.
10.4.2008
Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir
Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)
4.4.2008
Vel heppnað námskeið fyrir kjötiðnaðarmenn
Kjötmeistararnir Jens Munch og Jan Olsen kynntu aðferðir við framleiðslu á soðnum og hráverkuðum kjötvörum á umfangsmiklu námskeiði fyrir kjötiðnaðarmenn um helgina. Þemað var framleiðsla á Ítölskum kjötvörum, s.s. á paté, skinkum, salami, pylsum bæði soðnum og hráverkuðum, grillpylsum o.s.frv. Samtals tóku yfir 30 kjötiðnaðarmenn þátt í námskeiðinu sem heppnaðist mjög vel og var haldið í samstarfi við Ísam og AVO.
20.2.2008
Sveinsbréfaafhending í matvæla- og veitingagreinum
18.2.2008
Starfsnám í Skotlandi
14.2.2008
Dagur menntunar í ferðaþjónustu
|
|
|
Dagur menntunar í ferðaþjónustu verður haldinn þann 19. febrúar nk. og hefur SAF forgöngu um alla skipulagningu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun fytja ávarp og tveir skoskir fyrirlesarar munu segja frá góðri reynslu tengdri sí- og endurmenntun starfsfólks þar í landi, annars vegar hjá hótelkeðjunni MacDonald og hins vegar hjá afþreyingarfyrirtækinu CairnGorm Mountain í skosku hálöndunum. |
| Sjá dagskrá fundarins hér. |
24.1.2008
Ferðaþjónusta – Dreifnám
Spennandi verkefni er hafið. Nú hefur farið af stað samvinnuverkefni við Framhaldsskólann í Austur Skaftafellssýslu um nám í ferðaþjónustu fyrir nemendur skólans. Fyrstu námslotunni er lokið og voru móttökurnar frábærar. Fimm staðbundnar lotur verða haldnar og fara fram á FAS og Hótel Höfn, þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Nemendahópurinn var skemmtilegur og áhugsamur um ferðaþjónustu og gera miklar væntingar til áfangans. Þau hafa flest öll unnið við ferðaþjónustu og vilja styrkja sig í starfi. Áfanginn verður kenndur í dreifnámi.
Leit
Mynd









