Beint á leiðarkerfi vefsins

31.5.2007

Írarnir eru komnir...

Sex írskir nemendur ásamt kennara komu til landsins fyrir rúmri viku. Þau hafa fengið frábærar móttökur frá veitingamönnum. Einn orðaði það svo að hann væri búin að finna sinn stað í lífinu og vill helst flytja hingað...þessi ummæli eru frá Patrick sem er á Perlunni.

 

31.5.2007

Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR

Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 15 að Stórhöfða 31. Á fundinum verður farið yfir starfsemi á yfirstandandi ári og gerð grein fyrir verkefnum næsta starfsárs. Baldur Sæmundsson mun kynna nýtt samstarf Hótel- og matvælaskólans og César Ritz um nám í hótelstjórnun. Kynning á Leonardó verkefni sviðsins, umræður um Matur 2008 og fl.

22.5.2007

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum voru haldin dagana 14. - 16. maí sl. Samtals þreyttu 27 nemendur sveinspróf í fjórum iðngreinum.

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd