Beint á leiðarkerfi vefsins

30.10.2007

Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu 2007

 Nemar sem unnu til verðlauna 2007 Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram í Hótel- og matvælaskólanum þriðjudaginn 30. október. Samtals tóku 15 matreiðslunemar þátt í keppninni og fjórir framreiðslunemar. Sigurvegarar í framreiðslu urðu þær Tinna Óðinsdóttir nemi á JT-veitingum og Ylfa Sigþrúðardóttir nemi á Einari Ben. Í keppni matreiðslunema urðu hlutskarpastir þeir Davíð Örn Hákonarson nemi á VOX og Garðar Óli Gylfason nemi á Silfri.

18.10.2007

Létt og gott með Marentzu

lettoggott1

Mikil ánægja var með námskeiðið Létt og gott í hádeginu með Marentzu Poulsen. Eldaðar voru dýrindis....

9.10.2007

Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík

Nemendur á námskeiði HR

Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.    

1.10.2007

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2007

Hin árlega nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu fer fram við Hótel- og matvælaskólann þriðjudaginn 30. október nk. Umsóknarfrestur til þess að sækja um rennur út 24. október nk. Sækja um hér.

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd