Beint á leiðarkerfi vefsins

14.12.2007

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum fór fram dagana 11. til 13. desember. Samtals þreyttu 24 nemar próf í greinunum. Í matreiðslu tóku samtals 12 nemendur sveinspróf, sjö í framreiðslu, þrír í bakaraiðn og einn í kjötiðn.
kalda3

6.12.2007

Kynning á frumvarpi til laga um framhaldsskóla

Starfsgreinaráð matvæla- veitinga- og feraðþjónustugreina stóð fyrir kynningu á nýju frumvarpi til laga um framhaldsskóla miðvikudaginn 5. desember að Hallveigarstíg 1. Karl Kristjánsson frá menntamálaráðuneyti kom á fund starfsgreinaráðsins og kynnti efni frumvarpsins. Sjá kynningarefni menntamálaráðuneytisins og frumvarp til laga um framhaldsskóla.

30.10.2007

Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu 2007

 Nemar sem unnu til verðlauna 2007 Nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fór fram í Hótel- og matvælaskólanum þriðjudaginn 30. október. Samtals tóku 15 matreiðslunemar þátt í keppninni og fjórir framreiðslunemar. Sigurvegarar í framreiðslu urðu þær Tinna Óðinsdóttir nemi á JT-veitingum og Ylfa Sigþrúðardóttir nemi á Einari Ben. Í keppni matreiðslunema urðu hlutskarpastir þeir Davíð Örn Hákonarson nemi á VOX og Garðar Óli Gylfason nemi á Silfri.

18.10.2007

Létt og gott með Marentzu

lettoggott1

Mikil ánægja var með námskeiðið Létt og gott í hádeginu með Marentzu Poulsen. Eldaðar voru dýrindis....

9.10.2007

Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík

Nemendur á námskeiði HR

Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.    

1.10.2007

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2007

Hin árlega nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu fer fram við Hótel- og matvælaskólann þriðjudaginn 30. október nk. Umsóknarfrestur til þess að sækja um rennur út 24. október nk. Sækja um hér.

25.9.2007

Bættu um betur - Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR fræðsluseturs sérhæfir sig í að aðstoða einstaklinga við raunfærnimat og náms- og starfsval.
Sjá nánar tengil inn á síðu náms- og starfsráðgjafa hér hægra megin á síðunni.

17.9.2007

Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar

IÐAN fræðslusetur heldur námskeið í samvinnu við Háskólann í Reykjavík um bestu aðferðir rekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum og tilvonandi stjórnendum. 

30.8.2007

Sundmeistari afhendir nýjan námsvísi

Afhending námsvísis
Jakob Jóhann Sveinsson margfaldur Íslandsmeistari í sundi afhenti Finnbirni Hermannssyni stjórnarformanni IÐUNNAR fyrsta eintakið af nýjum námsvísi í gær.  Jakob Jóhann prýðir forsíðu námsvísisins að þessu sinni. Námskeiðsframboð IÐUNNAR er glæsilegt sem fyrr og geta aðiladarfélagar valið úr rúmlega 100 námskeiðum á haustönn.  Námsvísirinn berst félagsmönnum í pósti á næstu dögum. Skráningar á námskeið eru á heimasíðunni hér til vinstri og í síma 5906400.

31.7.2007

Námskeið matvæla- og veitingasviðs haustið 2007

Námskeið haustannar 2007 eru komin á netið og innritun er þegar hafin. Á haustmisseri verða áhugaverð námskeið í boði og viljum við hvetja félagsmenn okkar að kynna sér námsframboðið.

13.6.2007

Írarnir eru farnir....

Írsku nemarnir eru farin eftir þriggja vikna dvöl. Þau voru öll himinlifandi yfir móttökunum. Christine sem var á Sjávarkjallaranum segir hopur_1b

8.6.2007

Nám í hótelstjórnun í samstarfi við César Ritz

Í haust mun kennsla í hótelstjórnun hefjast innan Menntaskólans í Kópavogi.  Um er að ræða nám á háskólastigi og er það kennt í samstarfi við César Ritz Colleges í Sviss.  Verður fyrsta árið af þremur kennt hér á landi og munu nemendur síðan eiga þess kost að ljúka BA námi sínu í Sviss.  Allar nánari upplýsingar er að finna hjá Baldri Sæmundssyni í síma 594-4000 eða á bs@mk.is

  César Ritz

7.6.2007

Danir undirbúa kennslu með farsímum

 Í Danmörku er rannsakað hvort kenna megi með þriðju kynslóðar farsímum. Tilraunir hafa verið gerðar með að senda stutta kennslumola til stétta sem nota ekki tölvur í sínum störfum.

31.5.2007

Írarnir eru komnir...

Sex írskir nemendur ásamt kennara komu til landsins fyrir rúmri viku. Þau hafa fengið frábærar móttökur frá veitingamönnum. Einn orðaði það svo að hann væri búin að finna sinn stað í lífinu og vill helst flytja hingað...þessi ummæli eru frá Patrick sem er á Perlunni.

 

31.5.2007

Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR

Ársfundur matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR verður haldinn fimmtudaginn 31. maí kl. 15 að Stórhöfða 31. Á fundinum verður farið yfir starfsemi á yfirstandandi ári og gerð grein fyrir verkefnum næsta starfsárs. Baldur Sæmundsson mun kynna nýtt samstarf Hótel- og matvælaskólans og César Ritz um nám í hótelstjórnun. Kynning á Leonardó verkefni sviðsins, umræður um Matur 2008 og fl.

22.5.2007

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum

Sveinspróf í matvæla- og veitingagreinum voru haldin dagana 14. - 16. maí sl. Samtals þreyttu 27 nemendur sveinspróf í fjórum iðngreinum.

11.4.2007

FOWL PLAY - Írarnir koma....

hrefna_1Tólf írskir matreiðslunemar koma til landsins fyrir tilstuðlan matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR.

15.3.2007

Bættu um betur - húsasmíði

Verkefnið Bættu um betur - Húsasmíðibyggiðn


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd