4.8.2010
Námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010
24.4.2010
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu
23.4.2010
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu
Norræna nemakeppnina í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 23. - 24. apríl í Noregi. Keppendur koma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnland og Danmörku en þetta er í 24 skiptið sem keppnin er haldin. Keppnin hófst kl. 10 í morgun og sýnt er beint frá keppninni á slóðinni http://norcomp.blogspot.com. Frá Íslandi keppa í matreiðslu þau Ylfa Helgadóttir nemi á Fiskmarkaðnum og Ari Gunnarsson nemi hjá Fiskifélaginu. Í framreiðslu keppa þau Sigrún Þormóðsdóttir nemi á Humarhúsinu og Stefanía Höskuldsdóttir á VOX.
18.2.2010
Forkeppni í matreiðslu fyrir Íslandsmót iðngreina
9.2.2010
Sveinspróf í matreiðslu
Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Seinni hluti prófs, heitur matur, verður í maí. Nánari dagsetning auglýst síðar.
Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2010.
Umsóknareyðublöð má nálgast á hér á heimasíðu IÐUNNAR og skrifstofunni.
26.1.2010
Ferð til CABAS nóvember 2009
Einnig voru fulltrúar IÐUNNAR og Bílgreinasambandsins með í ferðinni samkvæmt samkomulagi þar um við ABÍ.
Frekari upplýsingar á notendavef cabas.is.21.1.2010
Stefnumótun IÐUNNAR í fullum gangi
Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)
7.1.2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út
Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.
Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.
Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
Leit
Mynd









