Starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins
Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR fræðsluseturs leiðir tilraunaverkefnið GEMS (Guidance for Educators, Mentors and Students). Tilgangurinn með verkefninu er að auka gæði og gagnsæi náms í matvæla-, veitinga- og ferðaþjónstugreinum. Markmiðið er að hanna viðurkenndan leiðarvísi ásamt leiðbeiningum handa fyrirtækjum sem taka á móti erlendum nemum ásamt leiðarbók handa nemum sem fara erlendis og taka hluta af vinnustaðanámi sínu erlendis. Skráð þekkingaröflun nemanna og fyrirtækjanna getur aukið verðmæti í greinunum. Samstarfsaðilar verkefnisins koma frá Ferðamálaskólanum í Kópavogi, Omagh College í N-Írlandi, Stella Maris í Belgíu, Ester Mosseson Gymnasium í Svíþjóð og WSB-NLU háskólanum í Póllandi. Náið samstarf er haft með hagsmunaaðilum í greinunum. Mat á verkefninu er í höndum Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Verkefnið er styrkt af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins.
Sjá nánar Guidance for Educators Mentors and Students
Leit
Mynd










