10.2.2012
Könnun meðal fagfólks í iðnaði
Nú nýverið lét IÐAN fræðslusetur kanna viðhorf fagfólks í iðnaði til starfsins, vinnustaða og möguleika til starfsþróunar. Niðurstöðurnar eru áhugverðar fyrir alla þá sem hafa áhuga á málefnum iðn- og starfsnáms. Þær varpa áhugaverðu ljósi á ímynd iðnaðar, starfsánægju og sjálfsmynd fagfólks í iðnaði.
Kynningarnar fara fram að Skúlatúni 2, á 6.hæð og verða sem hér segir:
Kynning fyrir starfsfólk í prentiðnaði - 14. febrúar kl.8.30-10.00
Kynning fyrir starfsfólk í byggingariðnaði - 15. febrúar kl. 8.30-10.00
Kynning fyrir starfsfólk í málm- og véltækniiðnaði 17. febrúar kl. 8.30-10.00
Kynning fyrir starfsfólk í hársnyrtiiðn 21. febrúar kl. 8.30-10.00
Kynning fyrir starfsfólk í matvæla- og veitingagreinum 22. febrúar kl. 8.30-10.00
Kynning fyrir starfsfólk í bílgreinum 23. febrúar kl. 8.30-10.00
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
6.1.2012
Styrkir til vinnustaðanáms
1.11.2011
Stórt skref til eflingar starfsnámi
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Þetta er merkur áfangi í eflingu starfsnáms í landinu en samtals var úthlutað 57 milljónum til 65 fyrirtækja og njóta um 170 nemar góðs af þessari fyrstu úthlutun. Ingólfur Haraldsson hótelstjóri á Hilton Nordica tók á móti styrknum fyrir hönd síns fyrirtækis.
7.10.2011
World Skills London
World Skills keppninni lauk í dag. Íslensku keppendunum hefur gengið ágætlega í sínum greinum. Keppt er í samtals 46 greinum en fjöldi þátttakenda í hverri grein er mismunandi. Hér er hægt að nálgast myndir frá keppninni og keppendum. Hér er kynning á íslensku keppendunum. Myndband með Friðrik Óskarssyni keppanda í pípulögnum og Jóhönnu Stefnisdóttur keppanda í hársnyrtigreinum.
5.10.2011
World Skills London
World Skills leikarnir voru settir í gær og var opnunarhátíðin hin glæsilegasta. Samtals taka um 950 keppendur frá 58 þjóðlöndum þátt í leikunum. Keppnin hefst í dag og stendur yfir næstu fjóra daga. Frá Íslandi keppa þau Jóhanna Stefnisdóttir í hársnyrtiiðn, Friðrik Óskarsson í pípulögn og Arnar Helgi Ágústsson í rafvirkjun.
Sjá nánar myndir frá opnunarhátíðinni.
18.9.2011
Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2011
Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema fór fram dagana 17. og 18. september í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í úrslitakeppninni kepptu fimm framreiðslunemar og aðrir fimm nemar í matreiðslu. Keppnin var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar í keppni framreiðslunema voru þær Elín Bogga Þrastardóttir nemi á VOX, meistari Elínar er Gígja Magnúsdóttir og Eydís Rut Ómarsdóttir á Fiskfélaginu. Meistari Eydísar er Guðmundur Hansson. Í matreiðslu urðu sigurvegarar þeir Kristofer Hamilton Lord og Viktor Már Snorrason nemar á Fiskfélaginu. Meistari þeirra er Vigdís Ylfa Hreinsdóttir. Vinningshafar munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Finnlandi í apríl 2012.
3.8.2011
ATypi heldur ráðstefnu í Hörpu
Prenttæknisvið hefur tryggt sér takmarkaðan fjölda afsláttarmiða á ráðstefnuna fyrir aðildarfélaga sína. Áhugasamir hafi samband við sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn(hjá)idan.is
Leit
Mynd









